Reiðhallarsýning Þyts annan í páskum
Reiðhallarsýning Þyts verður annan í páskum, mánudaginn 1. apríl nk., í Þytsheimum á Hvammstanga kl. 14:00. Þar verður mjög fjölbreytt sýning þar sem sjá má hversu fjölhæfur íslenski hesturinn er og hversu stórum hópi fólks hann hæfir, segir á heimasíðu hestamannafélagsins Þyts.
Þar verða knapar allt frá leikskólaaldri upp í fullorðinsár. Knapar frá algerum byrjendum til mikilla reynslubolta í kennslu, þjálfun og keppni. Krakkar sem sína fimleika á hesti, bæði byrjendur og lengra komnir og einnig þýskir krakkar með reynslu af fimleikum á hesti.
Aðgangseyrir kr. 1.000. Frítt fyrir 12 ára og yngri.