Reiðsýning brautskráningarnema
Reiðsýning brautskráningarnema hestafræðideildar Háskólans á Hólum verður haldin á morgun, laugardaginn 24. mai á reiðvellinum fyrir framan Þrárhöllina og hefst hún kl. 13:00. Þáttakendur eru Hólanemar sem munu útskrifast með BS í reiðmennsku og reiðkennslu við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Miðgarði, föstudaginn 6. júní næstkomandi.
Á vef Hólaskóla er sagt frá því að sýningunni megi líkja við nokkurs konar uppskeruhátíð þar sem nemarnir sýna brot af því besta - ýmsar æfingar og útfærslur á verkefnum sem þeir hafa tekist á við í náminu. Einnig sýnishorn af prófum og ennfremur verður efnt til skeiðkappreiða og reiðkennarar munu lýsa og útskýra jafnóðum það sem fram fer. Að lokum er svo stillt upp fyrir myndatöku. Nemarnir leggja mikla vinnu og metnað í undirbúning sýningarinnar og hvetur Hólaskóli alla þá sem áhuga hafa, til að koma og sjá afraksturinn.