Reiðsýning útskriftarnema á Hólum
Síðasti hópurinn í „gamla reiðkennaranáminu“ er nú að ljúka veru sinni á Hólum, og próf standa yfir. Að vanda er í lokin boðað til veglegrar reiðsýningar, þar sem nemendurnir munu skarta einkennisjökkum FT og verðlaun verða afhent. Sýningin verður á reiðvelli Hólaskóla, föstudaginn 21. júní nk. og hefst klukkan 13. Á vef Hólaskóla eru allir boðnir velkomnir á þessa sýningu sem aðstandendur segja að verði glæsileg að vanda og bæði nemendum og skólanum til sóma.