REKO afhendingar á Blönduósi og Sauðárkróki
REKO afhendingar verða á Blönduósi og Sauðákróki á morgun, fimmtudaginn 7. maí, en þar geta neytendur pantað vörur milliliðalaust frá hinum ýmsu framleiðendum á svæðinu. Markmiðin með REKO eru m.a. að koma upp sölu- og dreifingarkerfi sem sparar tíma og peninga, að auka viðskipti með vörur úr héraði og efla nærsamfélagsneyslu og gera matarhandverki og heimavinnslu hærra undir höfði.
Viðskiptin fara þannig fram að á Facebook er að finna hópinn REKO Norðurland og þurfa áhugasamir að sækja um inngöngu þar til þess að geta pantað vöru. Framleiðendur kynna þá vöru sem í boði er á hverjum stað fyrir sig og neytendur leggja inn pöntun og greiða fyrir vöruna áður en afhendingin fer fram.
Meðal þess sem er á boðstólum er gott úrval af kjöti, andar- og hænuegg, broddur, sultur, pestó, hunang og ýmislegt fleira.
Afhendingar að þessu sinni verða sem hér segir:
- Á Blönduósi á bílaplani við Húnabúð, fimmtudaginn 7. maí klukkan 12:00-12:30.
- Á Sauðárkróki á bílaplani hjá N1 í Ábæ, fimmtudaginn 7. maí klukkan 17:00-17:30.
Í dag, miðvikudag, eru síðustu forvöð að leggja inn pöntun.
Hægt er að afla sér nánari upplýsinga um REKO og sölufyrirkomulagið á slóðunum https://mataraudur.is/reko-a-islandi/ og https://mataraudur.is/reko-algengar-spurningar-og-svor-fyrir-framleidendur/.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.