Rekstrarform Húnabúðar til umræðu á aðalfundi
Á vef húna.is er sagt frá því að allir stjórnarmenn Húnvetningafélagsins í Reykjavík séu þeirrar skoðunar að selja eða leigja eigi Húnabúð. Þetta kemur fram í bréfi stjórnar til félagsmanna í tilefni aðalfundar félagsins sem haldinn verður 6. maí næstkomandi í Húnabúð. Auk hefðbundinna dagskrárliða verður rekstrarform Húnabúðar tekið til umfjöllunar og meðferðar.
Í bréfi sem húni.is birti á vef sínum frá Bjarna Ragnari Brynjólfssyni, gjaldkera félagsins eru færð fyrir því sterk rök að breyta þurfi rekstrarformi Húnabúðar og selja eignina eða leigja hana. Í bréfi stjórnar til félagsmanna segir að þegar til tals hafi komið að selja Húnabúð fyrir nokkrum árum hafi skoðanir verið skiptar. Mótrök innan stjórnar sem utan hafi helst verið þau að með því myndu félagsmenn missa „hreiðrið“ sitt, samverustaðinn sem væri límið í félagsstarfi Húnvetninga. Í ljósi þeirra upplýsinga og staðreynda sem nú liggi fyrir séu hins vegar allir stjórnarmenn Húnvetningafélagsins komnir á þá skoðun að sala eða leiga Húnabúðar sé skynsamleg ákvörðun. Nauðsynlegt sé að ræða stöðuna og heyra raddir félagsmanna. Eru félagsmenn hvattir til að mæta á fundinn og tjá skoðun sína.
Bréf Bjarna Ragnars Brynjólfssonar gjaldkera:
Húnabúð
Fasteingamat Húnabúðar er 30,5 millj. kr. og brunabótamat er 64,1 millj. kr. Stærð húsnæðisins er 244,5 fermetrar (fasteignnúmer er 202-3349). Miðað við stutta könnun á fasteignavef Morgunblaðsins þá er ásett verð atvinnuhúsnæðis í póstnúmeri 108 nokkuð yfir fasteingamati. Raunverulegt verðmæti Húnabúðar ætti því ekki að vera undir fasteingamati.
Leigustarfsemi Húnabúðar hefur rétt náð að standa undir rekstri og afborgunum skulda síðustu ár. Kostnaður vegna viðhalds hefur komið frá öðrum tekjum Húnvetningafélagsins. Ekki virðast vera horfur á aukinni leigu og staðan mun því varla lagast.
Framundan er þörf á endurnýjun og viðhaldi í Húnabúð. Endurnýjun stóla mun að lágmarki kosta um 1,2 milljónir (með bólstrun á gömlu stólunum). Þörf er á viðhaldi gólfsins í Húnabúð. Einföld slípun og lökkun kostar að lágmarki 450.000,- en frekari endurbætur yrðu dýrari.
Hafinn er undirbúningur að viðhaldi utanhúss á húsnæði Skeifunnar 11. Kostnaðaráætlun frá 2010 er 20.946.100 kr og hlutdeild Húnabúðar er 12,42% í eigninni, auk þess sem verulegur hluti kostnaðar er vegna gluggaskipta og á annarri og þriðju hæð; hvað leiðir af sér að Húnvetningafélagið þyrfti að kaupa nýjar rúður í gluggana. Varlegt er því að áætla að hlutur Húnvetningafélagsins í framkvæmdum verði að lágmarki 2,6 milljónir króna.
Ofangreint leiðir til þess að eign Húnvetningafélagsins upp á rúmar 30 milljónir skilar félaginu kostnaði en ekki tekjum, auk þess að eignin krefst mikillar sjálfboðavinnu, bæði af stjórn félagsins og almennum félögum í Húnvetningafélaginu. Á sama tíma hefur útgáfa Húnvetnings og almennur rekstur félagsins skilað um 600.000,- kr. hagnaði árlega síðustu ár.
Sala á Húnabúð gæti skilað Húnvetningafélaginu um 30 milljónum. Ef það fé væri nýtt til að greiða allar skuldir félagins væru um 26 milljónir eftir.
Bankainnistæða að upphæð 30 milljónir króna geta skilað 600.000 kr á ári í hreinar vaxtatekjur (miðað við 2% vexti á verðtryggðum reikningi).
Ef Húnvetningafélagið hins vegar nýtti eign sína til að kaupa íbúð í Reykjavík og leigði hana út í almennri leigu, þá gæti íbúðin skilað félaginu allt að einni og hálfri milljón króna í nettó tekjur eftir skatta, fasteingagjöld og annan kostnað.
Á sínum tíma lagði Húnvetningafélagið áherslu á að eignast húsnæði til að geta boðið Húnvetningum gistingu í borginni. Síðar var skipt um áherslu og keyptur veislusalur til að hýsa samkomur Húnvetninga. Með tímanum hefur framboð á gistingu og veislusölum í Reykjavík aukist að miklum mun og auðvelt er að rökstyðja að Húnvetningafélagið geti nýtt eignir félagsins betur til styrktar félagslífi og góðum verkefnum í heimabyggð.
Sala Húnabúðar væri mikil breyting í starfsemi Húnvetningafélagsins en yrði örugglega umdeild. Ég tel reynslu undanfarinna ára sýna að eign á Húnabúð dugir ekki til að efla félagslíf Húnvetninga í borginni. Sala á Húnabúð gæti skilað Húnvetningafélaginu 600.000 – 1.500.000 kr. á ári í nettó tekjur sem nýta má í starfsemi félagsins án þess að ganga á eignir þess. Að viðbættum hagnaði frá Húnvetningi og örðum rekstri félagsins gæti félagið því nýtt 1.200.000 – 2.100.000 kr. á ári til að styðja við félagslíf Húnvetninga í borginni og til stuðnings við góð verkefni norðan heiða. Því finnst mér rétt að félagar í Húnvetningafélaginu taki til umræðu hvort tímabært sé að breyta starfsemi félagsins og selja Húnabúð.
Reykjavík 23. apríl 2014
Bjarni Ragnar Brynjólfsson
Gjaldkeri Húnvetningafélagsins í Reykjavík