Réttir í Skagafirði haustið 2016
Haustið er á næsta leiti og þá hefjast uppskerustörfin í sauðfjárræktinni með göngum, réttum og sláturtíð. Samkvæmt vef Sveitarfélagsins Skagafjarðar er búið að ákveða réttardaga í flestum skagfirskum fjár- og stóðréttum þetta árið og eru þær sem hér segir:
Fimmtudagur 8. sept fjárréttir: Hraunrétt Sléttuhlíð.
Föstudagur 9. sept fjárréttir: Stíflurétt Fljótum.
Laugardagur 10. sept fjárréttir: Holtsrétt, Flókadalsrétt, Skálárrétt, Unadalsrétt, Deildardalsrétt, Sauðárkróksrétt, Selnesrétt og Skarðarétt.
Sunnudagur 11. sept fjárréttir: Laufskálarétt, Staðarrétt og Mælifellsrétt.
Mánudagur 12. sept fjárréttir: Silfrastaðarétt.
Laugardagur 17. sept fjárréttir: Hofsrétt Vesturdal,
Laugardagur 17. sept stóðréttir: Skarðarétt, Selnesrétt og Staðarrétt.
Sunnudagur 18. sept fjárréttir: Hlíðarrétt Vesturdal.
Föstudagur 23. sept stóðréttir: Unadalsrétt og Deildardalsrétt.
Laugardagur 24. sept stóðréttir: Laufskálarétt.
Laugardagur 1. okt stóðréttir: Flókadalsrétt.
Hreppaskil eru mánudaginn 3. október.