Rökkurkórinn í Höfðaborg
Rökkurkórinn verður með tónleika í Höfðaborg nk. miðvikudagskvöld, 7. desember kl. 20:30.
Þar fá tónleikagestir að upplifa notalega jólastemningu en boðið verður upp á fjölbreytta söngskrá. Söngstjóri er Sveinn Sigurbjörnsson og undirleikari Thomas Higgerson.
Rökkurkórinn var stofnaður árið 1978 af söngglöðu fólki í Skagafirði. Kórinn hefur verið mjög öflugur frá upphafi og hefur haldið tónleika víðsvegar um landið og tekið þátt í fjölmörgum skemmtunum bæði einn og sér og með öðrum kórum.