Rúmlega 31 þúsund manns heimsóttu Minjahús og Glaumbæ
Mörg verkefni rötuðu á fjörur Byggðasafns Skagfirðinga en frá áramótum 2010-2011 hefur safnið starfar samkvæmt nýju skipulagi sem skiptir starfseminni í Rekstur annars vegar og Rannsóknir, varðveislu og miðlun hins vegar.
Undir rekstur fellur umsýsla, húsnæði, starfsmenn, markaðssetning og kynning, gestamóttaka, safnbúð og skipulag viðburða. Undir Rannsóknir, varðveislu og miðlun falla skráningar, rannsóknir, varðveisla, sýningar, útgáfa, heimasíða og önnur miðlun.
Á heimasíðu Byggðasafnsins kemur m.a. fram að gefnar voru út 15 rannsóknarskýrslur á árinu sem allar tengdust fornleifarannsóknum og þá voru þrjú smárit gefin út.
Safngestir voru alls 31300 í Minjahúsinu og í Glaumbæ og gestir á sýningar sem safnið hefur lánað muni til, á Vesturfarasetrinu á Hofsósi og Sögusetri íslenska hestsins á Hólum, voru u.þ.b. 8000. Fjórtán manns voru í 6,5 stöðugildum við safnið á árinu 2011 en fjórir eru í heilsársstöðum.