Sæluvikuviðburðir dagsins

Í dag standa yfir myndlistasýningar í Sæluviku, auk þess sem Sæluvikumótið í fótbolta hófst kl. 13 í dag og stendur til 20:00 út í kvöld. Þar geta allir spreytt, sig hvort sem eru þaulreyndar fótboltabullur eða þreytt sófadýr. Í kvöld verða svo tónleikar í Sauðárkrókskirkju, trúbbakvöld á Kaffi Krók og miðnætursýning hjá Leikfélaginu.

Aðrar sýningar hjá Leikfélaginu þessa helgi eru á morgun, 3. maí kl. 17 og sunnudagskvöldið 4. maí kl. 20. Miðasölusíminn er opinn alla helgina og númerið er 849-9434. Leikfélagið minnir á að Starfsmannafélag Heilbrigðisstofnunarinnar, Starfsmannafélag KS og Íbúðalánasjóður bjóða félagsmönnum sínum á sýningar.

Á tónleikunum í Sauðárkrókskirkju, sem bera yfirskriftina Þú sem eldinn átt í hjarta, verða fluttar sígildar söngperlur eftir Eyþór Stefánsson, Jón Björnsson og Pétur Sigurðsson.

Flytjendurnir fjórir tengjast allir Skagafirði á einn eða annan hátt. Ásgeir Eiríksson bassi, er brottfluttur Sauðkrækingur, Helga Rós Indriðadóttir sópran er búsett í Skagafirði, Margrét S. Stefánsdóttir sópran er frá Víðidal í Seyluhreppi hinum forna og Sigurjón Hannesson tenór er frá Víðimel, einnig í Seyluhreppi hinum forna.

Fleiri fréttir