Safnað fyrir Hólmfríði Rósu

Fjársöfnun fyrir Hólmfríði Rósu Jósepsdóttur á Fjarðarhorni er hafin á ný. Hólmfríður greindist með bráðahvítblæði sumarið 2010 en eftir góðan kafla í hetjulegri baráttu við þennan illvíga sjúkdóm veiktist hún á ný í  september sl.

Kvenfélag Bæjarhrepps fór af stað með fjársöfnun fyrir Hólmfríði Rósu Jósepsdóttur á Fjarðarhorni haustið 2010, þegar Hólmfríður þurfti að fara í mergskipti til Svíþjóðar í janúar 2011. Samkvæmt Norðanátt.is gekk söfnunin mjög vel og eiga margir þakkir skildar fyrir frábærar undirtektir.

Síðan Hólmfríður greindist á ný í  september sl. hefur hún mikið þurft að dvelja á sjúkrahúsi og því ekkert getað komið að búinu.

„Sigurður maðurinn hennar hefur reynt að vera hjá henni eins og kostur er. Vegna veikindanna hefur hann nánast ekkert getað unnið við sitt fag, rafvirkjunina, og að auki þurft á aðstoð að halda við búskapinn vegna dvalar í  Reykjavík. Okkur æskuvinkonur Rósu langar á ný að biðla til nágranna hennar og allra þeirra fjölmörgu sem láta sér annt um velferð vinkonu okkar að láta eitthvað af hendi rakna til þessarar hetju,“ segir í fréttatilkynningu á Norðanátt.is.

Bankaupplýsingar eru eftirfarandi  0159-05-403500 kt. 021258-4669.

Fleiri fréttir