Safnadagurinn í Glaumbæ

Íslenski safnadagurinn er sunnudaginn 7. júlí. Í tilefni dagsins verður frítt inn á sýningar Byggðasafns Skagfirðinga í Minjahúsinu og Glaumbæ. Skemmtilegt fólk sýnir gömul handbrögð á milli kl. 14 og 16 í Glaumbæ og félagar í Dansfélaginu Vefaranum taka sporið.

Önnur söfn á Norðurlandi vestra halda líka safnadaginn hátíðlegan, eins og greint hefur verið frá hér á vefnum.

Fleiri fréttir