Sálin í Miðgarði um helgina

Hin sívinsæla hljómsveit, Sálin, slær upp balli í Miðgarði í Varmahlíð laugardaginn 13. júlí nk. Langt er nú um liðið síðan Sálverjar skemmtu í þessu fornfræga húsi og er vert að hvetja Skagfirðinga og nærsveitamenn að taka fram dansskóna og góða skapið og skunda á ball með bros á vör og yl í hjarta.

Stefán Hilmarsson söngvari sveitarinnar segir að Sálin muni að sjálfsögðu flytja öll sín þekktustu lög, líkt og venja er, m.a. það allra nýjasta, sem út kom fyrir nokkrum dögum, lagið "Gefðu mér bros".

Aldurstakmark verður 18 ár, húsið opnar kl. 23. Miðaverð: 2.900.

http://www.youtube.com/watch?v=FbPxfLQXUoo

Fleiri fréttir