Samfélagsverðlaun Skagafjarðar veitt í fyrsta sinn í Sæluviku
Við setningu Sæluviku Skagfirðinga 2016 verða Samfélagsverðlaun Skagafjarðar veitt í fyrsta sinn. Verðlaunin verða veitt árlega þeim einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í Sveitarfélaginu Skagafirði sem þykir standa sig afburðavel í að efla skagfirskt samfélag, að því er fram kemur á vefsíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
„Nú óskum við eftir liðsinni íbúa sveitarfélagsins og hvetjum þá til að senda inn tilnefningar fyrir fimmtudaginn 21. apríl næstkomandi,“ segir í frétt á vefnum. Tilnefningum má skila á netfangið sigfus@skagafjordur.is eða í afgreiðslu ráðhússins á Sauðárkróki. Sæluvikan í ár stendur yfir frá 24. apríl til 1. maí.