Samið verði við Gauksmýri um skólamáltíðir

Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur samþykkt að ganga til samninga við fyrirtækið Gauksmýri ehf. um framleiðslu skólamáltíða fyrir Grunnskóla Húnaþings vestra frá og með haustinu 2014. Einnig stendur til að semja við Gauksmýri um rekstur matsölustaðar á Hvammstanga á heilsársgrunvelli.

Samþykktin, sem gerð var á sveitarstjórnarfundi þann 13. febrúar sl., er í samræmi við tillögu starfshóps um mötuneytismál. Sveitarstjórnin fól starfshópnum á fundinum að „leggja drög að samningi við Gauksmýri ehf. um framleiðslu skólamáltíða og rekstur matsölustaðar á Hvammstanga á heilsársgrundvelli fyrir sveitarstjórn til samþykktar,“ eins og segir í fundargerð.

Fleiri fréttir