Samið við rekstaraðila félagsheimila í Skagafirði
Á fundi menningar- og kynningarnefndar Svf. Skagafjarðar í gær voru lögð fram drög að samningum við væntanlega rekstraraðila félagsheimilisins í Hegranesi og Menningarhússins Miðgarðs í Varmahlíð. Ákveðið að ganga til samninga við Sigrúnu Aadnegard til eins árs með rekstur Ljósheima.
Nefndin fól sviðsstjóra að ganga frá samningi við Halldór Gunnlaugsson og Hildi Þóru Magnúsdóttur um rekstur félagsheimilisins í Hegranesi og jafnframt að gera slíkt hið sama við Stefán Gísla Haraldsson og Unni Gottsveinsdóttur um rekstur Menningarhússins Miðgarðs. Alls bárust fjórar umsóknir um rekstur Menningarhússins Miðgarðs.
Fimm umsóknir bárust um rekstur félagsheimilisins Ljósheima en að teknu tilliti til allra þátta eins og stendur í fundargerð varð niðurstaða nefndarinnar sú að ganga til samninga við Sigrúnu Aadnegard til eins árs. Þá var einnig ákveðið að fara í stefnumótunarvinnu varðandi framtíð félagsheimila í Skagafirði, hlutverk þeirra og sérstöðu.