Samningur um sjúkraflutninga í Skagafirði undirritaður

Undirritaður hefur verið nýr samningur til næstu fimm ára um sjúkraflutninga á milli Heilbrigðisstofnunar Norðurlands og Sveitarfélagsins Skagafjarðar og munu Brunavarnir Skagafjarðar sjá um framkvæmd samningsins líkt og undanfarin ár.
Samningurinn, nær til sjúkraflutninga í Skagafirði, utan Fljóta sem njóta þjónustu frá Fjallabyggð. „Áralöng hefð er fyrir samstarfi Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Brunavarna Skagafjarðar vegna sjúkraflutninga og eru samningsaðilar því mjög ánægðir með að óbreytt fyrirkomulag vegna sjúkraflutninga í Skagafirði hafi verið tryggt næstu árin,“ segir á skagafjordur.is.