Samstaða fordæmir óbilgirni Samtaka atvinnulífsins

Í gær ákvað samninganefnd Alþýðusambands Íslands að beina því til aðildarsambanda og félaga að vísa kjaradeilum við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara. Það er nauðsynlegt að mati nefndarinnar til að knýja á um launahækkanir á þessu ári. Stéttarfélagið Samstaða sendir ASÍ eftirfarandi baráttukveðjur:

“Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu haldinn 26. apríl 2011, sendir baráttukveðjur til samninganefnda innan ASÍ og fordæmir harkalega þá óbilgirni SA að tengja fiskveiðistjórnunarkerfið við samningagerð á almennum vinnumarkaði.”

Fleiri fréttir