Samþykkt að gera úttekt á samþættingu skólastarfs í Húnaþingi vestra
Á fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra í gær var lögð fram eftirfarandi tillaga um að ráða Harald L Haraldsson, hagfræðing, til að vinna úttekt, skýrslu og tillögur um mögulega samþættingu skólastarfs í Húnaþingi vestra. Var tillagan samþykkt samhljóða.
Til hliðsjónar við úttektina eru skýrsla starfshóps starfsmanna Húnaþings vestra frá október 2012 um sama efni svo og önnur gögn er málinu tengjast. Í úttekt Haraldar skal m.a. fjallað um eftirtalin atriði: fagleg- og fjárhagsleg áhrif, íbúaþróun, mannaflaþörf, mötuneytismál, húsnæðismál og skólaakstur.
Í störfum sínum skal Haraldur eftir því sem við á hafa samráð við starfshóp er skipaður var af sveitarstjórn Húnaþings vestra í desembermánuði 2012 svo og starfsmenn og stjórnendur Húnaþings vestra. Stefnt er að verklokum þann 15. janúar nk.