Sannkölluð markaðsstemming í Hegranesi
Um helgina var slegið upp markaði í félagsheimili Rípurhrepps í Skagafirði þar sem verslunin Basic plus í Mosfellsbæ og Zack á Laugarvegi buðu vörur sínar til sölu. Að sögn Rakelar Sigurhansdóttur, eiganda Basic plus var mikil traffík og mikil stemming. Vegna fjölda áskorana stendur til að endurtaka leikinn og hafa markaðinn aftur opinn um næstu helgi.
„Skagfirðingar kunna greinilega að meta að fá þessar vörur heim að dyrum,“ sagði Rakel, ein auk dömufatnaðar var boðið upp á vandaða danska stóla sem hún hefur til sölu, ásamt speglum, mottum og ýmsum húsbúnaði. Rakel rak áður verslunina Valhúsgögn og eru vörurnar hluti af lager þeirrar verslunar. „Hugmyndin kviknað af því Hildur á Ríp er æskuvinkona mín og síðan slóst Jóhanna vinkona mín sem er með Zack á Laugarvegi og heildverslunina Kleifarás í för með mér. Nú ætlum við bara að fylla hestakerruna aftur og bruna norður um næstu helgi,“ sagði Rakel í samtali við Feyki.