Sara Íslandsmeistari í ísbaði
Íslandsmeistaramót í ísbaði fór fram við sundlaug Sauðárkróks í gær. Það var Sara Jóna Emilía sem sigraði eftir harða baráttu við Benedikt S. Lafleur. Sara sat í ískarinu í 13:13 mínútur í vatni sem var við frostmark og ís í karinu að auki.
Benedikt náði 13:10 mínútum og ungur og efnilegur sundkappi, Arnar Freyr, varð í þriðja sæti með rúmar 6 mínútur.