Sauðárkrókur og Skagaströnd áfram í Söngkeppni Samfés

Söngkeppni Samfés fyrir Norðurland allt var haldin í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð sl. föstudagskvöld en þar voru saman komnir 620 unglingar sem skemmtu sér frábærlega vel og auðvitað alveg til fyrirmyndar að sögn Sigríðar Jóhannsdóttur forstöðukonu Húss frítímans á Sauðárkróki. Það voru 13 atriði frá öllu norðurlandinu sem voru sýnd og fimm þeirra kemst áfram í aðalkeppnina sem verður haldin í Laugardalshöllinni þann 3. mars.

Þau atriði sem komust áfram voru frá Sauðárkróki, Hrafnagili, Skagaströnd, Akureyri og Húsavík. Meðfylgjandi myndband tók Hugrún Pálsdóttir af atriði Friðar á Sauðárkróki en þar eru Bergrún Sól Áskelsdóttir sem syngur, Sunna Líf Óskarsdóttir á píanó og Daníel Logi Þorsteinsson á gítar.

http://www.youtube.com/watch?v=U8og250Z0YQ

Fleiri fréttir