Segir enga orku til fyrir álver í Skagabyggð
Í samtali við Ríkisútvarpið á laugardaginn sagði Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, enga orku vera til fyrir 120.000 tonna álver í Skagabyggð. „Þetta er mjög stórt verkefni og eins og staðan er núna engin orka til í það,“ sagði Jón í samtali við RÚV.
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum undanfarna daga hafa sveitarfélögin á Norðurlandi vestra skrifað undir viljayfirlýsingu og samstarfssamning við Klappir Development ehf. um uppbyggingu álvers á Hafursstöðum í Skagabyggð. Orkuþörf þessa 120.000 tonna álvers sem ætlað er að reisa er 206 MW.
„Það þyrftu þá að fara fram heilmiklar framkvæmdar í flutningskerfinu og/eða virkjunum til að það geti orðið að veruleika,“ sagði Jón í samtalinu við Ríkisútvarpið og taldi óraunhæft að af yrði.