Segja hrefnuveiðar styggja seli við Húnaflóa
Ríkisútvarpið greindi í fyrradag frá óánægju skipstjóra á selaskoðunarbátnum Brimli frá Hvammstanga með hrefnuveiðar nærri landi á Húnaflóa. Talsmaður hrefnuveiðimanna vísar þessu á bug og telur óþarft að fara út í frekari lokanir á veiðisvæðum, sem yrðu til að skemma fyrir veiðinni.
Veiðin mun hafa færst norður fyrir land vegna lokunar fyrir hrefnuveiði á Faxaflóa. Í frétt Ríkisútvarpsins í gær kemur fram að skipverjar á hrefnubátnum Hrafnreyði hafi skotið hrefnu um þrjá til fjóra kílómetra frá selalátrum á Heggstaðanesi og nú sé selurinn svo styggur að engin leið sé að sýna hann ferðamönnum.
Gunnar Bergmann Jónsson, talsmaður hrefnuveiðimanna, vísaði þessu á bug í viðtali í Morgunútvarpinu á Rás 2 í gærmorgun. „Fyrir það fyrsta þá vorum við ekki þrjá til fjóra kílómetra frá þessum skoðunarsvæðum þeirra heldur vorum við 10 kílómetra frá. Það er í rauninni ekki mögulegt fyrir þá að heyra, hvorki selina né menn í landi, þegar við erum að skjóta hrefnu á Húnaflóa.“
Ástæðu þess að hrefnuveiðimenn leita nú norður fyrir land og inn á Húnaflóa, segir Gunnar fyrst og fremst vera þá ákvörðun stjórnvalda að stækka griðasvæði hrefnu á Faxaflóa. „Við auðvitað verðum að leita annað þegar búið er að loka þessum svæðum. Við viljum að sjálfsögðu líka bera virðingu fyrir þessari starfsemi og viljum ekki vera ofan í þessum svæðum. En það þarf ekki að vera að loka svæðum fyrir okkur enn frekar, til þess að skemma hrefnuveiðarnar alveg.“