Selasetrið fær viðurkenningu TripAdvisor
Selasetrið á Hvammstanga hlaut nýverið sína aðra viðurkenningu á stuttum tíma frá ferðavefnumTripAdvisor. Viðurkenningin, sem nefnist Certificate of Excellence fyrir árið 2015, er veitt vegna fjölda góðra umsagna gesta á TripAdvisor.
Á vef Selasetursins segir að viðurkenningin sé setrinu afar mikilvæg en TripAdvisor sé vefur sem ferðamenn nota mikið til að afla sér upplýsinga um áhugaverða staði og því áríðandi að umsagnir séu góðar.
Undanfarin misseri hefur mikið verið lagt upp úr góðri upplýsingagjöf hjá Selasetrinu og einnig er markvisst verið að biðja gesti um umsagnir á TripAdvisor. Þetta tvennt hefur leitt til stóraukins fjölda jákvæðra umsagna, að því er segir á vef Selasetursins.