Seldu bakkelsi og styrktu Rauða krossinn

Þær vinkonur Halla, Ísabella og Eydís á Sauðárkróki sem eru átta ára gamlar ákváðu nú á aðventunni að styrkja Rauða kross Íslands með sölu á skreyttum piparkökur og brauði með pylsum inní sem þær höfðu bakað í skólanum. Salan gekk svo vel að bakkelsið rauk út eins og heitar lummur. Að sögn ömmu einnar stelpunnar voru þær svo ákafar í sölunni að jafnóðum og baukurinn fylltist fóru þær og settu peninginn í Rauðakross baukinn inni í búð, þannig að það er ekki alveg vitað hvað þær seldu fyrir mikið.

Jafnóðum og baukurinn fylltist var farið með peninginn í Rauðakross baukinn inni í búð.

-En þær voru ekkert smá ánægðar með sig, þegar þær voru búnar að selja allt bakkelsið og tæma sinn bauk í Rauða kross baukinn inn í búð, sagði amman ánægð með duglegar stelpurnar.

Fleiri fréttir