"Sendu mér sólskin" í Húnabúð

Sunnudaginn 13. október næstkomandi klukkan 15 verður haldinn menningardagur í Húnabúð í Reykjavík. Í boði verður fjölbreytt dagskrá tileinkuð Pétri Aðalsteinssyni, hagyrðingi og lagasmiði, frá Stóru-Borg í Húnaþingi vestra.

Menningadagurinn í Húnabúð á sunnudaginn:

,,SENDU MÉR SÓLSKIN“

Fjölbreytt dagskrá tileinkuð Pétri Aðalsteinssyni, hagyrðingi og lagasmiði, frá Stóru-Borg í Húnaþingi vestra:

Æviágrip Péturs. María Björnsdóttir flytur / myndasýning.

Húnakórinn undir stjórn Þórhalls Barðasonar syngur  lög og ljóð eftir Pétur.

Ljóðalestur. Pétur Vilhjálmsson les upp ljóð afa síns.

Tónlistarflutningur. Björn Pétursson og Benedikt Jóhannsson koma að norðan og flytja nokkur lög höfundar.

Kaffi og meðlæti í umsjón kaffinefndar. Verð kr. 500 á mann. Frítt fyrir 12 ára og yngri.

Fleiri fréttir