Siglinganámskeið fyrir alla

Siglingaklúbburinn Drangey á Sauðárkróki hefur undanfarna viku haldið siglinganámskeið fyrir börn í samstarfi við Sumartím og gengið vel að sögn Ingvars Páls Ingvarssonar formanns klúbbsins. Í síðasta Sjónhorni var auglýst námskeið fyrir eldri siglara eða frá 13 – 99 ára vikuna 1.-5. júlí en rangt símanúmer var gefið upp í auglýsingunni.

Upplýsingar og skráning eru hjá Ingvari í síma 8629061, netfang ipi@skagafjordur.is

og hjá Hallbirni í síma 8622539, netfang hallbjorn.bjornsson@capacent.is.

Siglt verður á kajökum, kanóum og seglbátum milli klukkan 18:00 og 20:00.

Fleiri fréttir