Sigur á Húsavík - næsti leikur á fimmtudaginn kl.18
Laugardaginn 27. júlí sl. mættu Stólarnir liði Völsungs á Húsavík. Stólarnir byrjuðu leikinn vel og á 4. mínútu skoraði Jordan Branco fyrsta markið í leiknum og staðan 0-1 fyrir Tindastól. Á 31. mínútu skoraði Chris Tsonis annað mark Stólanna og 5 mínútum síðar bætti hann við öðru marki og staðan þegar flautað var til hálfleiks 0-3 fyrir Tindastól.
Völsungur kom sér betur inn í leikinn í síðari hálfleik og á 46. mínútu skoraði Hafþór Már Aðalgeirsson fyrsta mark Völsungs í leiknum. Nokkrir leikmenn fengu að líta rauða spjaldið í síðari hálfleik og á 84. mínútu fékk Kári Eiríksson rautt spjald og Tindastólsmenn orðnir manni færri. Stuttu síðar, á 92. mínútu fékk annar leikmaður Tindastóls að sjá rauða spjaldið, en þá var Birni Antoni Guðmundssyni vísað af velli og Völsungar því 11 á móti 9. Völsungur fær vítaspyrnu á 93. mínútu og minnkar Hrannar Björn Steingrímsson muninn í 2-3. Á lokamínútum leiksins fékk Hrannar Björn sitt annað gula spjald í leiknum og Völsungar því 10 á móti 9 leikmönnum Stólanna.
Lokatölur leiksins 2-3 fyrir Tindastól.
Næsti leikur hjá strákunum er á morgun, fimmtudaginn 1. ágúst kl. 18:00.