Sigur í fyrsta leik hjá unglingaflokki
Unglingaflokkur Tindastóls karla í körfunni, undir stjórn Bárðar og Kára Mar., vann öruggan sigur á liði Stjörnunnar 99-70 í sínum fyrsta leik á tímabilinu í gær. Á heimasíðu Tindastóls segir að leikurinn hafi verið nokkuð jafn í fyrri hálfleik en heimastrákar var alltaf skrefinu á undan.
Stólarnir leiddu 18-15 eftir fyrsta leikhluta og 40-37 í hálfleik en í þeim þriðja bættu strákarnir heldur í og leiddu 69-55 er honum lauk. Forystuna lét Tindastóll aldrei af hendi og unnu að lokum 99-70.
Stig Tindastóls: Ingvi 23, Pétur 21, Páll 17, Friðrik 15, Þröstur 6, Hannes 6, Sigurður Páll 6, Finnbogi 3 og Viðar 2. Að auki spiluðu Arnar, Árni Freyr og Friðrik Hrafn. Hjá Stjörnunni var Sæmundur Valdimars langstigahæstur með 32 stig.