Sjá fyrir sér aukna skuldasöfnun sveitarfélagsins

„Fjárhagsáætlun meirihluta Framsóknar og Vinstri Grænna fyrir árið 2014 ber þess glöggt merki að fjárhagur Sveitarfélagsins Skagafjarðar er mjög þröngur“, segir í bókun Sigurjóns Þórðarsonar Frjálslynda flokknum og óháðum og Grétu Sjafnar Guðmundsdóttur, Samfylkingunni við fjárhagsáætlun Svf. Skagafjarðar fyrir árið 2014 sem kynnt var á fundi sveitarstjórnar í síðustu viku.

Þau Sigurjón og Gréta Sjöfn sjá fyrir sér aukna skuldasöfnun sveitarfélagsins þar sem aðhald og forsjálni hafi síður en svo ríkt í tíð núverandi meirihluta sveitarstjórnar eins og áframhaldandi bókun segir til um:

„Samkvæmt áætluninni er vart nægjanlegur afgangur af rekstri til þess að greiða afborganir af langtímalánum, það hefur í för með sér að það þarf að taka ný lán fyrir öllum framkvæmdum sem fyrirhugað er að fara í á næsta ári sem þýðir aukna skuldasöfnun. Núverandi meirihluti hefur því miður ekki sýnt nauðsynlega ráðdeild í sínum aðgerðum. Ef fram heldur sem horfir mun sá ávinningur sem vannst í sameiginlegum hagræðingaraðgerðum glutrast niður, hagræðing sem íbúar og starfsmenn sveitarfélasins færðu fórnir fyrir. Stóraukin skuldsetning sveitarfélagsins ber vitni um að aðhald og forsjálni hafi síður en svo ríkt í tíð núverandi meirihluta sveitarstjórnar. Einn helsti veikleikinn í áætlanagerð meirihlutans snýr að tekjuhliðinni og á það einkum við stórauknar þjónustutekjur. Áætlunin ber með sér að þjónustutekjur munu hækka tvöfalt meira en verðlag, á sama tíma og boðað hefur verið að gjaldskrár muni ekki hækka. Það er óraunhæft, sérstaklega ef litið er til þess að sveitarfélagið hefur frekar glímt við fólksfækkun en aukningu í tíð núverandi meirihluta. Helsti áhættuþátturinn í fjárhagsáætlun meirihlutans er sú óvissa sem ríkisstjórn undir forystu Framsóknarflokksins elur á, sem snýr að skerðingu á grunnþjónustu samfélagsins og sem boðaðar breytingar á löggæslu-, mennta- og heilbrigðismálum bera með sér. Breytingarnar geta augljóslega komið harkalega niður á fjárhag sveitarfélagsins og valda sömuleiðis óstöðugleika og óvissu meðal íbúa. Það má ekki gleyma því að fjárhagsáætlun er ekki bara rammi um útgjöld og tekjur, heldur er hún stefna um þjónustu og framkvæmdir og leggur línurnar fyrir það öryggi sem börn og fölskyldur ásamt fyrirtækjum í sveitarfélaginu búa við næsta árið. Starfsfólki sveitarfélagsins eru færðar þakkir fyrir góða og árangurríka vinnu við að ná fram sparnaði og auknu hagræði í rekstri“.

Gréta Sjöfn og  Sigurjón óskuðu að lokum að bókað yrði að þau sitji hjá við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2014.

Fleiri fréttir