Sjáðu hvað ég fann!
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
08.11.2013
kl. 08.59
Í tilefni af skráningarátaki á Héraðsskjalasafni Vestur-Húnavatnssýslu og hinum Norræna skjaladegi þann 9. nóvember verður ljósmyndasýningin „Horfnir Húnvetningar“ á bókasafninu á Hvammstanga.
Búið er að skrá og skanna fjöldan allan af ljósmyndum og er stór hluti þeirra af óþekktu fólki sem líklega á rætur að rekja í héraðið. Þessar ljósmyndir verða sýndar, í þeirri von að fá nöfn við þessi leyndardómsfullu andlit.
Sýningin verður opin laugardaginn 9. nóvember klukkan 13 til 16 og 11. til 15. nóvember á venjulegum opnunartíma bókasafnsins, frá kl. 10 til 17.