Sjávarleður útnefnt Sútunarverksmiðja ársins 2016 í Evrópu

Sjávarleður, eða Atlantic Leather, á Sauðárkróki hefur verið valið sútunarverksmiðja ársins (Tannery of the Year) í Evrópu. Samkvæmt heimasíðunni aplf.com var fyrirtækið upphaflega tilnefnt fyrir fyrirmyndar vinnubrögð og vinnsluaðferðir með sérstaka áherslu á hvernig fyrirtækið er meðvitað um umhverfið, starfsfólk sitt og nærsamfélag. Tilkynnt var um verðlaunahafann við hátíðlega athöfn í Hong Kong í gærkvöldi. Að sögn Gunnsteins Björnssonar framkvæmdastjóra Sjávarleðurs er þetta mikil viðurkenning fyrir fyrirtækið og fyrst og fremst góð kynning.
Um er að ræða alþjóðleg verðlaun sem eru svæðisskipt í fimm flokka; bestu sútunarverksmiðju ársins í Evrópu, Kína, Asíu (fyrir utan Kína), Ameríku og Afríku. Þetta er í fimmta sinn sem„Tannery of the Year“ verðlaunin eru afhent en megin tilgangur þeirra er að vekja athygli á því sem vel er gert í iðnaðnum.
„Það hefur verið í umræðunni að leðuriðnaðurinn sé skítugur og mengandi en það er líka fullt af fyrirtækjum sem eru að gera hlutina mjög vel. Meginatriðið með þessum verðlaunum er að draga þau fram,“ sagði Gunnsteinn þegar Feykir sló á þráðinn til hans í morgun.
Framkvæmd var umfangsmikil úttekt hjá fyrirtækjunum og var Sjávarleður heimsótt síðastliðið sumar. Að sögn Gunnsteins önnuðust tveir aðilar úttektina, annar þeirra er prófessor í sútunarskóla í Northampton og skoðar hann allt sem snýr að efnafræðilegri tækni, vélbúnaði og slíkt. Hinn starfar sem blaðamaður hjá tímariti sem heitir „World Leather Magazine“. Sá fer yfir samfélagslega þýðingu fyrirtækjanna á hverjum stað fyrir sig, hvernig hugsað er um starfsfólkið og þess háttar. Að yfirferð lokinni gefa þeir út skýrslu sem er notuð til grundvallar við tilnefningu fyrirtækjanna.
„Tilnefnd voru tíu fyrirtæki og tvö þeirra voru boðuð til Hong Kong þar sem til stóð að afhenda verðlaunin yfir hátíðarkvöldverði. Það voru Atlantic Leather og sænskt fyrirtæki sem nefnist Tärnsjö Garveri,“ útskýrir Gunnsteinn og segist hæstánægður með verðlaunaafhendinguna.
Leiðandi í sútun á fiskroði
Sjávarleður er orðið eitt af leiðandi sútunarfyrirtækjunum í heiminum í dag, sérstaklega í sútun á fiskroði. Sjávarleður og annað brasilískt fyrirtæki, sem notast við aðrar fisktegundir en Sjávarleður, eru tvö fremstu fyrirtækin í þeim bransa. Fyrirtækið hefur um árabil skipt við stærstu tískuhús heims og fer orðspor þess vaxandi frá ári til árs.
Sjávarleður og dótturfyrirtæki þess, Loðskinn, eru bæði staðsett í sútunarverksmiðjunni á Sauðárkróki, en starfa hvort á sínu sviði. Sjávarleður framleiðir leður úr roði af fjórum fisktegundum, á meðan helsta framleiðsluvara Loðskinns eru hinar sígildu langhára loðgærur af haustlömbum.