Sjómannadagurinn á Hvammstanga
Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur á Hvammstanga á sunnudaginn. Dagskráin hefst klukkan 10:00 með busli við höfnina. Klukkan 13:00 fer fram helgistund við höfnina og eftir hana verður m.a. boðið upp á siglingar, sjómannadagskaffi, hjólarallý og keppni með fjarstýrðum bílum.
Dagskrá sjómannadagsins á Hvammstanga:
10:00: Busl við höfnina
Koddaslagur, pallahlaup og fleira skemmtilegt. Heimkeyrsla fyrir blauta.
13:00: Helgistund við höfnina
Sr. Magnús Magnússon og kirkjukór Hvammstanga leiða athöfnina.
Lagður verður blómsveigur að minnisvarða um drukknaða sjómenn að athöfn lokinni. Gefandi hans er Kvennaband V-Hún.
Sigling
Að helgistundinni lokinni verður öllum boðið upp á siglingu um Miðfjörð af BBH útgerð með Hörpu HU 4 og Selasiglingu ehf með Brimli.
15:00: Sjómannadagskaffi og harmóníkutónleikar
Kaffisala Slysavarnadeildarinnar Káraborgar verður að venju í Félagsheimilinu Hvammstanga undir ljúfum harmóníkutónum.
17:30: Landsbanka hjólarallýið
Þeir sem fæddir eru 2004 og fyrr mæta við Kirkjuhvammskirkju kl 16:45 en þeir sem fæddir eru 2005 og síðar mæta við Íþróttamiðstöðina á Hvammstanga.
18:00: Keppni með fjarstýrðum bílum
Keppni með fjarstýrðum bílum í íþróttahúsinu á Hvammstanga fyrir alla aldurshópa.