Sjómannadagurinn á Hvammstanga

Sjómannadagurinn er næstkomandi sunnudag, 7. júní. Á Hvammstanga er það Slysavarnadeildin Káraborg og Björgunarsveitin Húnar sem hafa veg og vanda af hátíðahöldunum í bænum.

Dagskráin er svohljóðandi:

11:00 Landsbanka-hjólarallýið

Þeir sem fæddir eru 2006 og fyrr mæta við Kirkjuhvammskirkju kl. 10:45 en þeir sem fæddir eru 2007 og síðar mæta við Leikskólann Ásgarð.

13:00 Helgistund við höfnina

Sr. Magnús Magnússon og kirkjukór Hvammstanga leiða athöfnina.

Lagður verður blómsveigur að minnisvarða um drukknaða sjómenn að athöfn lokinni. Gefandi blómsveigsins er Kvennaband V-Hún.

Sigling

Að helgistundinni lokinni er öllum boðið í Sjómannadagssiglingu um Miðfjörð af BBH útgerð með Hörpu HU 4 og Selasiglingu ehf. með Brimli HU18.

15:00 Sjómannadagskaffi

Slysavarnadeildin Káraborg verður með Sjómannadagskaffi og meðlæti í Húnabúð að siglingu lokinni og eru allir boðnir velkomnir í heimsókn.

Gestir geta kynnst starfseminni hjá Björgunarsveitinni Húnum og Slysavarnadeildinni Káraborg.

Landsbankinn, Skólabúðirnar Reykjaskóla og Innes styrkja Sjómannadagskaffið í ár.

Svo er minnt á Sjómannadagshappdrætti Slysavarnadeildarinnar Káraborgar þar sem verður margt góðra vinninga. Allur ágóði rennur til að styrkja slysavarnir og björgunarmál í Húnaþingi vestra.

Fleiri fréttir