Sjómannadagurinn á Hvammstanga - Myndir
Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur á Hvammstanga að venju en í ár bar hann upp á sunnudaginn 2. júní. Hátíðarhöldin voru með hefðbundnu sniði og var boðið upp á busl við höfnina, helgistund við höfnina, siglingu, messu, Sjómannadagskaffi, Landsbanka hjólarallýið og keppni með fjarstýrðum bílum. Auk þess voru tónleikar Harmóníkukvintettsins í Reykjavík í Félagsheimilinu Hvammstanga og voru þeir vel sóttir, eins og frá er sagt á norðanátt.is.
Myndir frá hátíðarhöldunum er að finna á vef norðaráttar.