Skagafjarðarrallið hefst í dag

Í ár eru 16 áhafnir skráðar til leiks í annarri umferð Íslandsmótsins og stendur Bílaklúbbur Skagafjarðar að rallinu með aðstoð HENDILS ehf.

Fyrsti bíll verður ræstur frá plani Skagfirðingabúðar kl.18:00 á föstudaginn. Fyrsta sérleið verður Þverárfjall, ásamt Laxárdal og svo síðar um kvöldið verður æsispennandi leið um Sauðárkrókshöfn rölluð tvisvar. Gestum keppninnar er bent á svæðið á Nöfunum fyrir ofan olíutankana, en þar ætti fólk að geta fylgst vel með keppninni.

Á laugardaginn verður Mælifellsdalurinn góði reyndur ásamt leið um Vesturdal. Rallið endar svo að lokum með tveimur umferðum um Nafir, sú leið er einnig áhorfendavæn. Endamark verður á plani Skagfirðingabúðar um kl. 15:10.

Keppnisstjóri er Fylkir Jónsson.

Fleiri fréttir