Skagafjarðarrallið - Sigurður Bragi og Ísak sigra
Þeir Sigurður Bragi Guðmundsson og Ísak Guðjónsson á MMC Lancer Evo 7 komu svo sannarlega, sáu og sigruðu Skagarfjarðarrallýið í ár en þeir héldu forystu sinni frá fyrstu sérleið og út alla keppnina með þónokkrum yfirburðum. Það voru 15 áfhafnir sem voru skráðar til leiks að þessu sinni og þar af náðu 13 að klára keppnina sem verður að þykja gott í svona erfiðri keppni. DV.is segir frá þessu.
Lokaúrslit helgarinnar voru annars á þessa leið:
Heildin:
1. sæti Sigurður Bragi Guðmundsson / Ísak Guðjónsson - MMC Lancer Evo 7
2. sæti Henning Ólafsson / Árni Gunnlaugsson - Subaru Impreza
3. sæti Halldór Vilberg Ómarsson / Brynjar Ögmundsson – Subaru Impreza
Flokkur NT:
1. sæti Halldór Vilberg Ómarsson / Brynjar Ögmundsson – Subaru Impreza
2. sæti Bragi Þórðarson / Guðni Freyr Ómarsson – Subaru Impreza
3. sæti Þórður Guðni Ingvason / Elvar Smári Jónsson – Subaru Impreza
Heildartíma allra áhafna á öllum sérleiðum má finna á upplýsingasíðu keppninnar hér.
Þórður Guðni og Elvar Smári taka hér flugið. Þeir enduðu í þriðja sæti í non turbo flokknum um helgina. Mynd: Katrín María Andrésdóttir