Skagafjörður ætlar ekki að endurnýja samstarfssamning um málefni fatlaðra

Jón Bærings og Bára frá Mel á Íslandsmóti í boccia 2013. Mynd: Feykir
Jón Bærings og Bára frá Mel á Íslandsmóti í boccia 2013. Mynd: Feykir

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar ákvað á fundi sínum í morgun að draga sig út úr samstarfi nokkurra sveitarfélaga um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra sem rennur út um næstu áramót. Fyrr í sumar ákvað byggðarráð Húnaþings vestra að endurnýja ekki samninginn og varð þá strax ljóst að hann yrði í uppnámi.

Núgildandi samningur um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra gildir til 31. desember 2019 og kemur fram á heimasíðu Svf. Skagafjarðar að í samningnum sé kveðið á um að aðildarsveitarfélögin skulu ákveða sameiginlega fyrir 1. nóvember 2019 hvort samningurinn verði endurnýjaður.

„Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar harmar að 20 ára samstarf sveitarfélaga á Norðurlandi vestra í málefnum fatlaðs fólks sé á enda runnið með brotthvarfi Húnaþings vestra frá núverandi samstarfi frá og með næstu áramótum.

Í ljósi nýrrar stöðu telur byggðarráð farsælast að Sveitarfélagið Skagafjörður sinni málefnum fatlaðs fólks eingöngu innan sinna sveitarfélagamarka þegar gildandi samningur rennur út. Þó er byggðarráð reiðubúið til að gera viðauka við nýgerðan samning við Akrahrepp um að veita þjónustu í málaflokknum til íbúa hreppsins ef vilji þaðan stendur til þess,“ segir í bókun byggðaráðs Svf. Skagafjarðar frá því í morgun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir