Skagafjörður tekur 200.000.000 kr. lán
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti á síðasta fundi sínum að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 200.000.000 kr. til 15 ára. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins. Er lánið tekið til að fjármagna framkvæmdir við smábátahöfn sveitarfélagsins auk þess að fjármagna gatnagerð, lyftu í Safnahúsi, breytingar á leikskóla og almennar framkvæmdir eignasjóðs við viðhald opinna svæða og stíga.
Sigurjón Þórðarson fulltrúi Frjálslyndra og óháðra lét bóka eftirfarandi: "Óneitanlega skýtur það skökku við að sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar undir forystu Framsóknarflokksins skuli leggja fram hér til samþykktar verðtryggðan lánasamning til 15 ára m.a. til þess að fjármagna framkvæmdir á Sauðárkróki, á sama tíma og Framsóknarflokkurinn í ríkisstjórn er í þann mund að afnema verðtrygginguna jafnvel á næstu mánuðum ef mark má taka á forsætisráðherra.
Stefán Vagn Stefánsson tók þá til máls og ítrekaði bókun meirihlutans frá 631. fundi byggðarráðs þann 18. júlí.
"Eftir að hafa kynnt sér þau kjör sem fjármálastofnanir bjóða upp á var það mat fjármálastjóra og sveitarstjóra að sá samningur sem hér um ræðir væri sá hagfeldasti fyrir sveitarfélagið. Í samningnum er uppgreiðsluákvæði sem hægt er að nýta ef kjör samningsins breytast verulega og betri kjör fást annarsstaðar.
Stefán Vagn Stefánsson, Gísli Árnason, Jón Magnússon"
Umsókn um langtímalán var svo borin undir atkvæði og samþykkt með átta atkvæðum, einn sat hjá.