Skagfirðingafélagið með heimasíðu
Nú hefur Skagfirðingafélagið í Reykjavík opnað heimasíðu þar sem allir helstu viðburðir félagsins verða auglýstir í framtíðinni ásamt fréttum og myndum frá þeim atburðum sem félagið stendur fyrir. Þegar er komin tilkynning um það hvenær þorrablót Skagfirðingafélagsins í Reykjavík verður haldið en það verður þann 25. janúar nk. í Þróttaraheimilinu og er fólk beðið að taka daginn frá.
Einnig er hægt að nálgast lög félagsins en þar stendur að tilgangur félagsins sé sá að auka viðkynningu Skagfirðinga sem búsettir eru í Reykjavík og nágrenni hennar eða dvelja þar um stundarsakir og styðja að framfara- og menningarmálum Skagafjarðar.
Þá getur hver sá gengið í félagið sem fæddur er í Skagafjarðarsýslu, eða hefur átt þar heima eða telur sig af einhverjum ástæðum svo nátengdan héraðinu að hann hafi sérstakan áhuga á málefnum þess.
Slóðin á síðuna er http://skagfirdingafelagid.is