Skagfirðingar með mest vaxandi fyrirtæki Svíþjóðar

InExchange, fyrirtæki Skagfirðinganna Þórðar Erlingssonar og Gunnars Búasonar í Svíþjóð hlaut viðurkenningu hjá Deloitte þar í landi sem örast vaxandi fyrirtækið í sænska internetgeiranum og í öðru sæti yfir öll tæknifyrirtæki í Svíþjóð. Að sögn Þórðar hefur fyrirtækið vaxið um 4172% síðan 2008.

Gunnar Búason.

Sweden Technology Fast 50 er heiti þessa atburðar hjá Deloitte og birtir árlega hvaða 50 fyrirtæki hafa vaxið mest í Svíþjóð. Verðlaunaafhendingin fór fram sl. þriðjudag í Moderna Museet í Stokkhólmi. -Þetta setur okkur á topp 50 í Evrópu, hvar við lendum á þeim lista fáum við að vita þann 28. nóvember segir Þórður.

Fleiri fréttir