Skagfirðingar vermdu sæti Akureyrarflugvallar í átta tíma
Yfir sjötíu Skagfirðingar þurftu að sýna mikla biðlund er þeir brugðu undir sig betri fætinum um síðustu helgi og héldu til Riga í Lettlandi því mikil töf varð í upphafi ferðar þegar þotunni, sem lenda átti á Akureyrarflugvelli, var snúið við til Keflavíkur. Flugstjórinn hafði reynt lendingu á Akureyrarflugvelli en mistekist aðflugið. Mbl.is greindi frá því í gær að Isavia hafi í kjölfarið sent tilkynningu um málið til rannsóknarnefndar samgönguslysa sem mun rannsaka atvikið.
Þrír hópar úr Skagafirði voru meðal þeirra sem biðu eftir að vélin, með um 20 farþega innanborðs, lenti á Akureyrarflugvelli en í loftið átti að fara áleiðis til Riga klukkan 10 um morguninn. Undarlegt þótti verðandi farþegum á jörðu niðri að töfin væri sögð vegna veðurs því veðurgleggstu menn þóttu það ákjósanlegt til flugs enda lentu innanlandsvélarnar hver á eftir annarri um daginn. Það var ekki fyrr en um miðjan dag að vélin góða lenti norðan heiða en þá kom í ljós að lögboðinn hvíldartími flugmanna var að hefjast og frekari tafir því óumflýjanlegar. Var öllum komið fyrir í gistingu á Akureyri sem á þurftu að halda og í loftið var svo farið um klukkan hálf fjögur um nóttina og lent heilu og höldnu í Lettlandi tæpum fjórum stundum síðar.
Þótt mörgum hafi mislíkað töfin og þær skýringar sem gefnar voru upp vegna atviksins heppnaðist ferðin vel en í Feyki næstu viku verður ferðasagan sögð frá tveimur hliðum.
Sjá frétt Mbl.is HÉR