Skagfirðingar vilja flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni
Á fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar nú í morgun var samþykkt ályktun um Reykjavíkurflugvöll þar sem skorað er á borgarstjórn Reykjavíkur að endurskoða framkomnar hugmyndir um færslu vallarins og gleyma ekki skyldum sínum sem höfuðborg við hinar dreifðu byggðir landsins.
Ályktunin er svohljóðandi:
„Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar vill koma þeirri skoðun sinni á framfæri að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram í Vatnsmýrinni.
Flugvöllur í Vatnsmýrinni gegnir lykilhlutverki í samskiptum landsbyggðar og höfuðborgar sem og fyrir öryggi og sjúkraflug í landinu. Staðsetning flugvallarins hefur ítrekað sannað gildi sitt í þessum efnum og það er spurning hvort ekki þurfi að endurskoða uppbyggingu bráðaþjónustu Landspítalans ef þessi áform ná fram að ganga.
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar skorar á borgarstjórn Reykjavíkur að endurskoða framkomnar hugmyndir um færslu vallarins og gleyma ekki skyldum sínum sem höfuðborg við hinar dreifðu byggðir landsins.“
Undir hana skrifa fulltrúar allra flokka, þau Stefán Vagn Stefánsson, Bjarni Jónsson, Jón Magnússon, Sigurjón Þórðarson og Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir.