Skagfirski kammerkórinn í Hóladómkirkju í kvöld
Skagfirski kammerkórinn verður með árlega jólatónleika í Hóladómkirkju í kvöld, 20. desember kl. 20:00. Þar mun Kristín Halla Bergsdóttir einnig koma fram og leika nokkur lög á fiðluna.
Samkvæmt heimasíðu Skagfirska kammerkórsins er markmið hans er að flytja og kynna þjóðlög og kirkjulega tónlist, sem sjaldan heyrist utan hefðbundinna kirkjulegra athafna. „Kórinn leggur sig eftir að syngja fallega tónlist við innihaldsríka texta án undirleiks (a capella). Oft eru tekin fyrir ákveðin þemaefni í þeirri viðleitni að tengja tónskáld, textahöfunda, tíðaranda,“ eins og segir á heimasíðunni.