Skagginn 2015
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
10.08.2015
kl. 09.59
Skagginn er bæjarhátíð Skagstrendinga sem fer fram um næstu helgi, dagana 14. - 16. ágúst. Þetta verða sannkallaðir gleðidagar og auðvitað er nærsveitungum boðið að vera með. Dagskrá hátíðarinnar liggur fyrir og verður hún borin í hús um helgina á Skagaströnd. Óhætt er að segja að í dagskránni finna allir eitthvað við sitt hæfi.
Sem dæmi má nefna froðudiskó sem verður á Kaupfélagstúni, minigolfmót, tónleikar á útisviði, loftbolti, ball með hljómsveitinni Trukkarnir og varðeldur. Dagskrá í heild sinni má lesa hér, en tómstunda- og menningarmálanefnd sveitarfélagsins stendur fyrir henni.