Skammhlaup í háspennulínu reyndist orsökin

Varaspennir var fluttur frá Akureyri áður en vitað var um ástand hins. Mynd: Rarik.is
Varaspennir var fluttur frá Akureyri áður en vitað var um ástand hins. Mynd: Rarik.is

Eins og greint var frá í Feyki á í síðustu var stór hluti heimila í Skagafirði rafmagnslaus í allt að sex klukkustundir þriðjudaginn 23. febrúar. Mælingar sem gerðar voru aðfararnótt fimmtudagsins leiddu í ljós að bilunin var ekki í spenni.

Í fréttatilkynningu sem Landsnet sendi frá sér í gær segir að straumleysið hafi orðið vegna skammhlaups til jarðar í háspennulínunni milli Varmahlíðar og Sauðárkróks. Ekki hefur verið hægt að staðsetja bilunina nánar, enda hafa engin ummerki um hana fundist.

„Erfiðlega gekk að koma rafmagni aftur á Sauðárkrók þar sem bilun kom upp í öðrum af tveimur 66 kV aflrofum í tengivirkinu á staðnum, en viðgerð á rofanum var lokið um kl. 16:45 og var flutningskerfið þá komið aftur í eðlilegan rekstur,“ segir í fréttatilkynningunni frá Landsnet.

Eftir ítarlega skoðun á Sauðárkrókslínu 1, sem er 66 kV loftlína milli Varmahlíðar og Sauðárkróks, hafa engin ummerki fundist um bilunina og er nú talið að skammhlaup til jarðar (jarðstraumur) hafi valdið útleysingu en orsökin er óþekkt. Áfram verður unnið að könnun á frumorsök bilunarinnar og til öryggis verður einnig farið yfir ástand hins aflsrofans í spennistöð Rarik á Sauðárkróki,“ segir ennfremur í fréttatilkynningunni frá Landsnet.

Aðfararnótt 25. febrúar voru gerðar þrjár mismunandi einangrunar- og ástandsmælingar á aflspenninum. Niðurstöður þeirra allra voru að spennirinn er í fullkomnu lagi og truflunin ætti því ekki uppruna sinn í spenninum eða kerfi Rarik. Umfang straumleysisins stafaði því fyrst og fremst af því hve erfiðlega gekk að spennusetja 66kV aflrofa Landsnets í aðveitustöðinni, að því er fram kemur á vefsíðu Rarik.

Fjallað er um rafmagnsleysið í 9. tölublaði Feykis sem er þessa stundina að koma glóðvolgur úr prentvélinni.

Fleiri fréttir