Skapandi smiðjur í rit– og tónlist fyrir börn
Aura - Menningarstjórnun býður börnum á aldrinum 9-13 ára upp á skapandi smiðjur í rit– og tónlist í Skagafirði.
Smiðjurnar eru tvær:
Ketilási mánudaginn 8. ágúst kl. 10:00-14:00 og þriðjudaginn 9. ágúst kl. 14:00 sem endar með sýningu fyrir aðstandendur kl. 17:00.
Árgarði miðvikudaginn 10. ágúst kl. 10:00-14:00 og fimmtudaginn 11. ágúst kl. 14:00 sem endar með sýningu fyrir aðstandendur kl. 17:00.
Í smiðjunun verður unnið með texta og tónlist á skapandi hátt og verður afraksturinn sýndur í lok seinni dagsins fyrir aðstandendur.
Smiðjurnar eru öllum opnar, bæði heimamönnum og ferðalöngum og eru ókeypis öllum þátttakendum. En takmarkaður fjöldi getur tekið þátt í hvorri smiðju.
Skráning fer fram hjá Signýju í gegn um tölvupóst: signy@auraarts.net
Við skráningu þarf að koma fram nafn, aldur og hvort barnið hafi stundað formlegt tónlistarnám áður (reynsla af tónlistarnámi er ekki krafa).
Aura - Menningarstjórnun | menningarstjornun.is
Styrktaraðiliar: Samfélagssjóður Landsvirkjunar, Menningarráð Norðurlands vestra og Sveitarfélagið Skagafjörður