,,Skelltu upp brosi, þá ertu good to go!"
Rakel Svala Gísladóttir er tvítugur króksari. Hún kláraði stúdentinn við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra í desember 2014 og er nú Au pair á Sikiley á Ítalíu og ætlar sér að njóta lífsins þar fram í júní-júlí. Feykir spurði Rakeli út í hennar daglegu förðunarrútínu.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Mín helstu áhugamál eru að vera með fjölskyldu og vinum, spila fótbolta og stunda líkamsrækt, ferðast, elda og baka.
Hver er þín daglega förðunarrútína?
Ég ber kókosolíu á andlitið kvölds og morgna, og strík svo yfir með volgum þvottapoka.
1. Primer: Photo Finish primerinn frá Smashbox.
2. Meik: Ég nota Foundation frá Kiko fyrir venjulegan dag og svo nota ég Teint Idole Ultra frá Lancóme þegar ég fer eitthvað fínna. Skelli svo stundum á mig púðri frá Kiko.
3. Sólarpúður: Ódýrt og gott frá H&M.
4. Kinnalitur: Nr 109 frá Kiko.
5. Augabrúnir: Í augabrúnirnar nota ég stundum, alls ekki alltaf, lit frá Body Shop.
6. Maskari: Ultra Tech frá Kiko.
7. Svo enda ég oftast á því að skella Under Eye Brightener frá Smashbox sem kallast „Photo Op“.
8. Ef ég fer svo eitthvað extra fínt, eða er í meira stuði heldur en vanalega, þá skelli ég á mig Cake Eyeliner frá Make Up Store, og stundum augnskugga.
Hver er þín uppáhalds förðunarvara?
Ég myndi klárlega segja Ultra Tech maskarinn minn frá Kiko, hann er klárlega uppáhalds hingað til og Cake eyelinerinn frá Make Up Store.
Hvenær byrjaðir þú að farða þig?
Ég man að það var í kringum 7. bekk á Reykjum sem við stelpurnar vorum að skella á okkur sólarpúðri og svo þegar við fórum út í birtuna sáum við hvað við vorum flekkóttar, og hlupum aftur inn og reyndum að laga okkur, sem gerði ekkert betra.
Hvað er þitt versta „förðunarslys“?
Ætli það hafi ekki verið að fikta of snemma við augabrúnirnar mínar, ég var heillengi að ná þeim ásættanlegum.
Hvað er þitt helsta náttúrulega leyndarmál að betra útliti?
Ekkert leyndarmál en ætli það sé ekki bara að vera sáttur í sínum eigin líkama og skella upp brosi, þá ertu good to go!
Lítur þú upp til einhvers einstaklings þegar kemur að förðun?
Bestu vinkonu minnar hennar Ísabellu. Hún hefur kennt mér margt og er bara svo mikill snillingur, án efa uppáhalds förðunarfræðingurinn minn.
Ef að þú mættir velja hvern sem er í heiminum til að kíkja í snyrtitöskuna hjá, hvern myndir þú velja?
Bara Ísabellu líka, svo miklar líkur á því að það gerist þannig a ég get verið vongóð.
Eitthvað að lokum?
Ef að þið hafið ekki prófað að þurrbursta húðina ykkar frá öklum og upp að öxlum þá mæli ég eindregið með því. Það er það besta sem þið getið gert fyrir húðina ykkar. Þetta hjálpar til við að losa okkur við dauðar húðfrumur, gerir húðina mýkri og fallegri og dreifir líkamsfitu jafnt um líkamann. Ég á hringlaga þurrbursta frá Body Shop og reyni að gera þetta á hverjum degi og ber svo gott body lotion frá Bath&Body Works eftir á.
Svo bara áfram Tindastóll...