Skemmtilegur opnunardagur

Árlegur nytjamarkaður „gæranna“ var opnaður á Hvammstanga um síðustu helgi. Góð stemming virðist vera fyrir þessu framtaki því gestir markaðarins munu hafa mætt tímalega og beðið eftir að opnað væri, eins og sagt er frá á vefnum Norðanátt.is. Margir gerðu góð kaup og er haft eftir „gærunum“ að þetta hafi verið einn skemmtilegasti opnunardagurinn frá því að markaðurinn var settur á laggirnar.

Fleiri fréttir