Skemmtun fyrir Magga

Starfsfólk sundlaugarinnar á Hofsósi og á Bifreiðaverkstæði KS munu nú á sunnudagskvöld standa fyrir skemmtikvöldi í sundlauginni á Hofsósi til styrktar Magnúsi Jóhannessyni og fjölskyldu hans.

Magnús lenti í alvarlegu vinnuslysi í júní mánuði og er eins og staðan er í dag bundinn við hjólastól og stundar endurhæfingu á Grensás. Fjölskylda Magnúsar dvelur hjá honum í Reykjavík sem er honum gríðarlegur styrkur

Á skemmtikvöldinu mun verða flutt lifandi tónlist á sundlaugarbakkanum, Gísli Einarsson mun sjá um að kitla hláturtaugarnar auk þess sem verður boðið upp á happadrætti og bögglauppboð. Léttar veitingar verða í boði. Fyrir þá sem treysta sér ekki í sundlaugina verður boðið upp á stóla á bakkanum.

Aðgangseyrir er krónur 1000 fyrir 16 ára og eldri og 500 fyrir börn. Athugið að ekki er posi á staðnum.

Þeim sem ekki komast en vilja samt styðja fjölskylduna er bent á söfnunarreikning þeirra; 0161-550279 kt: 110468-3429.

Þá bendum við á að ítarlegt viðtal við Magga er í Feyki sem kom út í gær fimmtudag.

Fleiri fréttir